Andri Ingason efstur
Andri Ingason er efstur í T4 ungmenna á Mætti frá Austurkoti með einkunnina 6,70. Í öðru sæti er Teitur Árnason á Gamm frá Skíðbakka III með einkunnina 6,67 og í þriðja sæti er Stella Sólveig Pálmarsdóttir á Fal frá Skammbeinsstöðum með einkunnina 6,27. Til gamans má geta er að bæði Teitur og Stella kepptu á Norðurlandamótinu fyrir Íslands hönd nú í byrjun ágústs.
Niðurstöður úr T4 í ungmennaflokki:
Sæti Keppandi
1 Andri Ingason / Máttur frá Austurkoti 6,70
2 Teitur Árnason / Gammur frá Skíðbakka III 6,67
3 Stella Sólveig Pálmarsdóttir / Falur frá Skammbeinsstöðum 3 6,27
4-5 Gústaf Ásgeir Hinriksson / Seifur frá Prestsbakka 6,13
4-5 Edda Rún Guðmundsdóttir / Þulur frá Hólum 6,13
6 Jón Óskar Jóhannesson / Svipall frá Torfastöðum 5,90
7 Birta Ingadóttir / Glampi frá Hömrum II 5,80
8-9 Erla Katrín Jónsdóttir / Dropi frá Selfossi 5,77
8-9 Kári Steinsson / Knörr frá Syðra-Skörðugili 5,77
10 Þórunn Þöll Einarsdóttir / Styrkur frá Strönd II 5,67
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH