Skráning hafin á World Toelt

  • 1. nóvember 2012
  • Fréttir
Skráning hafin á World Toelt

Skráning á Heimsbikarmótið World Toelt 2013, sem fer fram í Óðinsvéum, Danmörku dagana 22. og 23. febrúar, hófst í morgun. Mikil stemning hefur oftast skapast kringum mótið og hafa margir Íslendingar lagt land undir fót til að fylgjast með þessu stóra innanhúsmóti.

 
Skýr skilyrði eru settar keppendum en auk þess að vera skráðir á WR-lista FEIF verða þeir að hafa hlotið eftirfarandi lágmarkseinkunnir til að eiga rétt á þáttöku: 
T.1: 6,7
T.2: 6,3
V.1: 6,5
F.1: 6,1
Ef keppandi uppfyllir ekki fyrrnefndar kröfur getur hann þó eygt von um svokallað „wildcard“ sæti í keppninni.
 
Auk íþróttakeppninnar hefur stóðhestasýning mótsins þótt mikill auglýsingagluggi fyrir kynbótahesta en aðeins 1. verðlauna stóðhestar koma fram.
 
Skráning á World Toelt fer fram í gegnum heimasíðuna sporti.dk og frekari upplýsingar um skráningar má nálgast hér.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link