Haustfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands
Mynd/JFH
Haustfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður á morgun miðvikudaginn 19. október.
Fundurinn verður haldinn í félagsheimili Sleipnis, Hliðskjálf á Selfossi (í hesthúsahverfinu Suðurtröð) og hefst kl. 20:00. Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur Bændasamtaka Íslands fer yfir kynbótasýningar ársins og hvað er framundan. Mette Mannseth mun síðan fjalla um tamningar og þjálfun ungra hrossa sem stefnt er með í kynbótasýningu. Stjórnin hvetur félagsmenn til að fjölmenna á fundinn og taka þátt í umræðum. Kaffi og meðlæti í boði samtakanna.
Stjórn Hrossaræktarsamtaka Suðurlands
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH