Lækkun skráningagjalda á ísmót Hrings
„Eins og áður hefur komið fram mun hestamannafélagið Hringur standa fyrir opnu ísmóti á Hrísatjörn við Dalvík Laugardaginn 2. ferbrúar kl 12:00.
Vegna hagstæðra Icesave umræðna síðasta sólahringinn hefur mótanenfdin ákveðið að lækka skráningargjöld mótsins þannig að hver skráning pr. hest kostar 1000 kr.
Skráningar skulu berast Bjarna Valdimarssyni á tölvupóstfang [email protected]. fyrir miðvikudag 30.janúar kl 20:00. Greiðslur fyrir skráningu fara fram á mótsstað.
Upplýsingar varðandi mótið verða setta á facebook-síðu félagsins, þar sem heimasíðan liggur niðri sem stendur. facebook-síðan er: http://www.facebook.com/HestamannafelagidHringur
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Tölt opinn flokkur
Tölt opinn flokkur minna vanir
(Mótshaldarar áskila sér rétt að sameina tölt flokka náist ekki skráning í annan hvorn flokkinn.)
100m. skeið fljúgandi start,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH