Ráðstefnan Hrossarækt 2009

  • 3. nóvember 2009
  • Fréttir
Ráðstefnan Hrossarækt 2009

Árleg ráðstefna hrossaræktarinnar verður haldin á Hótel Sögu, laugardaginn 7. nóvember næstkomandi og hefst kl. 13:00.
Ráðstefnan er öllum opin sem láta sig íslenska hrossarækt varða jafnt fagfólki sem áhugamönnum.
Ekkert þátttökugjald.

    * Heiðursverðlaun afkvæmahryssna.
    * Viðurkenningar til ræktunarbúa 2009.
    * Áhugaverðir fyrirlestrar, opnar umræður.

Ráðstefnustjóri: Víkingur Gunnarsson.

Dagskrá:
13:00     Setning – Kristinn Guðnason formaður Fagráðs í hrossarækt
13:05    Hrossaræktarárið 2009 – Niðurstöður kynbótamats – Guðlaugur V. Antonsson, hrossaræktarráðunautur BÍ
13:30    Heiðursverðlaunahryssur 2009
14:00    Tilnefningar til ræktunarverðlauna 2009
14:15    Erindi:
–     Hross í frjálsri vist, Grétar Hrafn Harðarson, dýralæknir og Petra Mazetti, verkefnisstjóri
–     Ófrjósemi í íslenskum hryssum, Charlotta Oddsdóttir, dýralæknir
–     Rannsóknir á Exemi, Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, verkefnisstjóri
15:30    Kaffihlé
16:00    Umræður – orðið laust um erindin og ræktunarmál almennt
17:00    Ráðstefnuslit

Fagráð í hrossarækt

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link