Folaldasýning og sala í Miðey – Austur Landeyjum

  • 14. september 2011
  • Fréttir
Laugardagur til lukku

Laugardaginn 17. september verður stóðinu smalað í Miðey og gestum og gangandi boðið að koma og líta á ungviðið. Hægt er að koma og skoða gripina milli kl. 14 og 17.  Mikill fjöldi folalda og tryppa verða til sýnis og sölu og hægt að gera glimrandi góð kaup að sögn aðstandenda. Í stóðinu eru meðal annars folöld og tryppi undan Fonti frá Feti, Hvammi frá Norður Hvammi, Magna frá Þúfu, Ófeigi frá Vatnahjáleigu, Dynjanda frá Feti, Svartni frá Miðsitju og Ljósálfi frá Hvítanesi.
Til að komast í Miðey er beygt niður veg 253 af Þjóðvegi 1 (Bakka afleggjari) að Voðmúlastöðum og þar beygt inn veg 252 (Miðeyjarafleggjari). Frá Miðey hafa meðal annars komið fram glæsihryssurnar Árborg, Aldís og Eydís.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link