RÚV sendir út frá LM
RÚV mun fylgjast vel með landsmóti hestamanna á Hólum í komandi viku og boðið verður upp á bæði samantektarþætti og beinar útsendingar.
Á miðvikudag og fimmtudag verða samantektarþættir að loknum tíufréttum sjónvarps og á föstudag og laugardag verða beinar útsendingar á RÚV og RÚV2 frá nokkrum af helstu hápunktum mótsins. LM dagskrá RÚV er eftirfarandi:
Mið. 29.06.: Samantekt kl. 22:20 RÚV
Fim. 30.06.: Samantekt kl. 22:20 RÚV
Fös. 01.07.: Bein útsending
kl. 17:00-18:00 150 og 250 m skeið RÚV
kl. 20:00-21:30 B- úrslit A flokkur gæðinga og A úrslit í tölti RÚV2
Lau. 02.07.: Bein útsending
kl. 10:00-12:15 A úrslit í barna, unglinga og ungmennaflokki RÚV
kl. 17:00-18:00 100 m skeið RÚV
kl. 19:00-21:30 A úrslit í B og A flokki gæðinga RÚV2
Þriðjudaginn 18. júlí verður svo sendur út samantektarþáttur af öllu mótinu að loknum tíufréttum kl. 22:20. Um dagskrárgerð samantektarþátta sjá þeir Gísli Einarsson og Óskar Þór Nikulásson, en lýsandi í beinum útsendingum verður Hulda G. Geirsdóttir.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH