Hesturinn í forgrunn
Hross – alls konar hross – koma fram í kvikmynd Benedikts Erlingssonar sem hann gerir ráð fyrir að verði frumsýnd næsta haust. Um innansveitarkróníku er að ræða – blóðuga sveitarrómantík – þar sem menn og hross þeysast um íslenska náttúru og er meðal annars lögð áhersla á hið mennska í hestinum og dýrið í manninum. Myndin var tekin upp um allt land í sumar og rötuðu ævintýri leikara og leikstjóra oftar en ekki á síður ljósvakamiðla.
Í 6. tölublaði Eiðfaxa sem kom út í haust má nálgast t.a.m. viðtal við Benedikt Erlingsson, leikstjóra myndarinnar en í dag biðlar hann til hestamanna að leggja sitt af mörkum til að klára eftirvinnslu myndarinnar. Í viðtalinu nefnir hann einmitt þá þrautagöngu sem fjármögnun kvikmyndar er.
„Þetta er eins og alltaf, þrautaganga; sérstaklega fyrir byrjanda eins og mig í kvikmyndagerð. Handritið fékk mjög góðar undirtektir hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands og framleiðandinn, Friðrik Þór Friðriksson, tók þessu óskaplega vel. Þetta hefði ekki verið hægt nema vegna þess að við fengum hóp af einkafjárfestum; listafólk, vinir og félagar og hugrakkt fólk sem hafði innsýn inn í hestamenninguna og sá möguleikana í efniviðnum,“ segir hann m.a. í viðtalinu.
Meðfylgjandi er bréf sem frá Bendikt:
Kæru hestamenn.
Það er að verða til kvikmynd um ykkur!
Hún heitir Hross og menn og verður leikinn mynd fullri lengd.
Það má segja að hún sé fyrsta dramatíska kvikmyndin með íslenskahestinum í forgrunni.
En við þurfum á hjálp ykkar að halda. Ef þið hafið tök á að leggja okkur lið þá kíkið á þessa síðu.
http://alpha.karolinafund.com/project/view/2
Þar er hægt heita á okkur og í raun kaupa DVD diskinn fyrirfram og fá hann heimsendann þegar þar að kemur.
Peningarnir sem safnast notum við til að klára eftirvinnslu myndarinnar og láta drauminn rætast.
Kvikmynd sem verður óður til hestamenningarinnar og íslenska hestsins.
En umfram allt góð mynd sem segir sögur af fólki eins og okkur. Mönnum sem lifa með hestum og hestum sem lifa með mönnum.
Sjá einnig frekari upplýsingar um myndina og okkur sem að henni stöndum á :
http://hrosss.is
og
http://www.facebook.com/Hrossmovie?fref=ts
Benedikt Erlingsson
Leikstjóri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH