Aðalfundur Skeiðfélagsins og Skeiðleikar sumarsins
Aðalfundur Skeiðfélagsins verður haldinn þriðjudaginn 27. apríl klukkan 20:30 í Hlíðskjálf félagsheimili Sleipnis á Selfossi.
Á dagskrá aðalfundarins eru venjuleg aðalfundarstörf.
Skeiðleikar Skeiðfélagsins í ár verða 5 talsins og eru þeir með aðeins breyttu sniði í ár þar sem þeir eru að hluta til í samstarfi við tvö hestamannafélög, Fák og Sleipni.
Fyrstu Skeiðleikarnir verða haldnir samhliða íþróttamóti Sleipnis. Skeiðleikarnir verða að öllum líkindum föstudaginn 30. apríl en á laugardegi og sunnudegi verður síðan keppt í öðrum greinum. Það veltur dáltítið á skráningu hvort mótið byrjar á fimmtudegi eða föstudegi. Skráning á Skeiðleika 1 verður mánudaginn 26. apríl.
Skeiðleikar 2 verða haldnir laugardaginn 29. maí á Gæðingamóti Fáks.
Á þriðju Skeiðleikunum verður einnig keppt í tölti eins og vaninn er á Landsmótsári. En þeir fara fram þriðjudaginn 15. júní en sá dagur er einmitt síðasti skráningardagur í tölt og skeið á Landsmóti. Þannig að „síðasti séns“ er réttnefni fyrir þá leika.
Fjórðu og fimmtu Skeiðleikarnir verða síðan með hefðbundnu sniði á miðvikudegi, aðrir í Fák og hinir í Sleipni.
Hér að neðan eru dagsetningar Skeiðleika sumarsins.
Dags Nafn Staðsetning
30.4.2010 Skeiðleikar 1 Brávellir, Selfoss (íþróttamót Sleipnis)
29.5.2010 Skeiðleikar 2 Víðivellir, Reykjavík (gæðingamót Fáks)
15.6.2010 Skeiðleikar 3 – síðasti séns, Brávellir, Selfoss
14.7.2010 Skeiðleikar 4 Víðivellir, Reykjavík
11.8.2010 Skeiðleikar 5 Brávellir, Selfoss
Kveðja,
Stjórn Skeiðfélagsins
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH