Stable quiz
Það var hestamannafélagið Fákur sem sigraði síðast.
Eftir mikla eftirspurn og þrýsting munum verður haldið “Stable quis” (spurningakeppni hestamannafélaganna) í haust, keppnin sló í gegn í hittifyrra en ekki náðist að setja hana upp sl haust vegna anna.
Sigurvegarar ársins 2012 voru Fáksmenn enda með eðal lið sem skemmti áhorfendum fyrir allan peninginn !
Óskað er eftir umsóknum frá hestamannafélögum sem hafa áhuga á að senda 3 félagsmenn sína til að keppa í október – nóvember, en stefnt er að því að keppa á fimmtudagskvöldum í Harðarbóli í Mosfellsbæ.
Dregið verður um hvaða félög etja kappi og fer auðvitað allt eftir því hve margir vilja keppa hve margir fimmtudagar fara í þetta.
Farandbikar er í boði en hann prýðir nú stásstofur Fáks.
Sendið á Helenu upplýsingar um nöfn þeirra þriggja sem munu keppa fyrir hönd félagsins og nafn félags fyrir 1.október á netfangið [email protected]