Lífið hjá hestamannafélögunum

  • 29. nóvember 2011
  • Fréttir
Lífið hjá hestamannafélögunum

Kosið verður um sameiningu hestsamannafélaganna Skugga og Faxa á aðalfundum í kvöld. Þá eru hestamannafélögin eru í óðaönn að kynna vetrardagskrá sína og er ljóst að viðburðarríkur vetur er að hefja innreið sína.

Hestamannafélögin Skuggi og Faxi boða bæði til aðalfundar í kvöld, en á fundunum verða greidd atkvæði um sameiningu félaganna undir merkjum Faxa. Ef að sameiningu félaganna verður yrði hestamannafélagið Faxi sjötta stærsta hestamannafélagið innan vébanda LH, með um 550 félagsmenn. Starfssvæði sameinaðs félags verður Mýra- og Borgarfjarðarsýsla, norðan Skarðsheiðar. Greinagerð um sameiningu þeirra má nálgast hér.

Á heimasíðu Þyts má lesa skemmtilegar færslur þar sem fregnað er af hestamönnum í Vestur-Húnavatnssýslu. Þytskonurnar Irina og Kathrin Schmitt voru einnig í Landanum á RÚV um daginn aþr sem rætt var um þær um hestafimleika. Viðtalið má nálgast hér.

Mikið framboð af námskeiðum og fyrirlestrum verður í boði hjá hestamannafélaginu Gusti í vetur og hafa þeir birt veglega fræðsludagskrá.

Aðalfundur æskulýðsdeildar Þjálfa verður haldinn á Staðarhóli (hlaðan), kl. 10:30 laugardaginn 3.desember nk.

Aðalfundur Hrossaræktarfélags Andvara verður haldinn í félagsheimili Andvara þriðjudaginn 6. des. kl 20. Á fundinum verður ræktunarmaður ársins hjá félaginu kjörinn.

Hagabeit Sörla í Krýsuvík lokar formlega laugardaginn 10. desember og verður hestunum þá smalað kl. 11.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link