Aðalfundur FT á föstudag

  • 29. nóvember 2012
  • Fréttir
Aðalfundur FT á föstudag

Félag tamningamanna minnir á aðalfund sinn föstudaginn 30. nóvember í fréttatilkynningu.

 
„Fundurinn fer fram á veitingahúsinu Kænunni, Óseyrarbraut 2 í Hafnarfirði og hefst stundvíslega kl. 16. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, auk kynningar á „Tamningamanninum“ nýju námi sem er í þróun í samstarfi við LbhÍ á Hvanneyri. Einnig verður ný keppnisgrein „Töltfimi“ kynnt og Þórdís Erla Gunnarsdóttir, tamningamaður og reiðkennari, kynnir átak í hjálmanotkun „Klárir knapar.“ Félagsmenn eru sérstaklega hvattir til að koma og taka þátt í fundarstörfum og umræðum um félagið og hlutverk þess. Í lok fundar verður boðið upp á kvöldverð.“
 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link