Opnað fyrir skil á haustskýrslum
Matvælastofnun vekur athygli á að opnað hefur verið fyrir skráningu haustskýrslna í Bústofni (www.bustofn.is). Í samræmi við reglur (lög um búfjárhald nr. 38/2013) skulu umráðamenn búfjár skila inn haustskýrslu fyrir 20. nóvember um búfjáreign, fóður og landstærðir.
Undanfarin ár hefur vantað upp á að umráðamenn hrossa hafi skilað haustskýrslu lögum samkvæmt. Til að auðvelda umráðamönnum/eigendum hrossa að ganga frá haustskýrslu hefur Matvælastofnun ráðist í umtalsverðar umbætur á skráningarferlinu þar sem umráðamenn hrossa sem aðeins telja fram hross á haustskýrslu geta nú skilað haustskýrslu í heimarétt WorldFengs.
Þeir umráðamenn/eigendur sem einnig telja annað búfé fram á haustskýrslu þurfa nú að sækja upplýsingar um hrossin sín úr WorldFeng þegar skýrsla er skráð í Bústofn. Upplýsingar um staðsetningu og umráðamann hrossa þurfa því að vera réttar í WorldFeng.
Allir félagar í hestamannafélögum Landssambands hestamannafélaga og félögum Félags hrossabænda um allt land eiga að hafa frían aðgang að WorldFeng. Þeir sem hafa ekki þann aðgang geta hins vegar skráð sig inn í WorldFeng með sérstökum hjarðbókaraðgangi, nánari upplýsingar um aðgang veitir tölvudeild Bændasamtaka Íslands ([email protected]).
Að auki stendur til boða þjónusta Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins fyrir þá sem ekki geta skilað sjálfir.
Nánari upplýsingar veitir Matvælastofnun
This is a reminder that your autumn livestock report is now accessible on www.bustofn.is. Deadline for individuals to file their autumn report is November 20th 2017.