Siggi Sig og Lýsi á toppnum-
Lið Lýsis skaust á toppinn með 88,5 stig í liðakeppninni eftir annað mót Meistaradeildar í hestaíþróttum í gærkvöldi. Lýsismaðurinn Sigurður Sigurðarson stendur á toppnum í einstaklingskeppninni með 19 stig.
Árbakki/Norður-Götur er komið í annað sæti í liðakeppninni með 81 stig og í því þriðja er liðið Top Reiter/Ármót/66°Norður með 75 stig.
Í einstaklingskeppninni er Sigurbjörn Bárðarson, Lýsi, í öðru sæti með 17,5 stig og Hulda Gústafsdóttir, Árbakki/Norður-Götur, í því þriðja með 15 stig.
Hér að neðan er staðan í einstaklings- og liðakeppninni eftir tvö mót.
Einstaklingskeppni
1. Sigurður Sigurðarson – Lýsi – 19
2. Sigurbjörn Bárðarson – Lýsi – 17.5
3. Hulda Gústafsdóttir – Árbakki/Norður-Götur – 15
4. Jakob Sigurðsson – Top Reiter/Ármót/66°North – 13
5. Hinrik Bragason – Árbakki/Norður-Götur – 9.5
6-7. Viðar Ingólfsson – Hrímnir – 8
6-7. Bylgja Gauksdóttir – Auðsholtshjáleiga – 8
8. Hekla Katharína Kristinsdóttir – Auðsholtshjáleiga – 7
9. Bergur Jónsson – Top Reiter/Ármót/66°North – 6
10. Sigursteinn Sumarliðason – Spónn.is – 5
11. Snorri Dal – Hrímnir – 4
12. Sigurður Vignir Matthíasson- Málning/Ganghestar – 3
13. Valdimar Bergstað – Málning/Ganghestar – 1
Liðakeppni
1. Lýsi 88.5
2. Árbakki/Norður-Götur 81
3. Top Reiter/Ármót/66°North 75
4. Auðsholtshjáleiga 67.5
5. Hrímnir 66.5
6. Málning/Ganghestar 55.5
7. Spónn.is 27
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH