Búið að uppfæra kynbótamatið (BLUP)
Nýtt kynbótamat (BLUP) hefur verið reiknað út en hægt er að skoða nýtt kynbótamat hjá einstaka hesti inn á WorldFeng.is, upprunaættbók íslenska hestsins.
Efstar í kynbótamati hryssna eru þær Trú frá Auðsholtshjáleigu og Gígja frá Auðsholtshjáleigu en báðar eru þær með 127 stig í aðaleinkunn kynbótamats. Trú og Gígja hlutu báðar heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í fyrra en Gígja hlaut hinn eftirsótta Glettubikar, en hann er veittur þeirri hryssu sem er með hæðstu aðaleinkunn kynbótmats. Á eftir þeim er síðan Þoka frá Hólum en hún er með 125 stig í aðaleinkunn kynbótamats og er líklegur handhafi Glettubikarsins í ár. Hægt er að sjá þær hryssur sem fá heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í ár hér.
Sá stóðhestur sem er með hæðstu aðaleinkunn kynbótamats er Spuni frá Vesturkoti en hann hefur hlotið 133 stig. Jafnir á eftir honum eru þeir Arion frá Eystra-Fróðholti og Gári frá Auðsholtshjáleigu með 129 stig í aðaleinkunn kynbótamats en Gári er Sleipnisbikarhafinn frá því í fyrra.
Til gamans má geta að Trú frá Auðsholtshjáleigu fór undir Spuna frá Vesturkoti í sumar svo spennandi verður að sjá þá BLUP-sprengju eftir nokkur ár.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH