Hestamannafélagið Geysir Skráningarfrestur fyrir WR Íþróttamót Geysis rennur út á miðnætti

  • 23. maí 2025
  • Tilkynning
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng og verður opin til kl. 23:59, föstudagsins 23. maí 2025.

„Við hvetjum knapa til þess að huga tímanlega að skráningum í dag til þess að minnka álag á kerfið í kvöld. Mótið fer fram 29.maí – 1. júní á Rangárbökkum og er gríðarleg tilhlökkun í loftinu fyrir fyrsta utanhús móti ársins á Rangárbökkum enda dagskrá sumarsins þétt,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Mótið er opið og leggur félagið upp með að bjóða upp á sem flesta flokka en komi til þess að ekki náist viðunandi fjöldi í flokka verða þeir felldir niður.

Fyrirspurnir vegna mótsins sendist á skraninggeysir@gmail.com
Nokkur atriði sem keppendur skulu hafa í huga:
  • Nái skráningar ekki 25 í ungmenna og fullorðinsflokkum eru eingöngu riðin A-úrslit
  • Nái skráningar ekki viðunandi fjölda fellur flokkur niður
  • Keppendur eru ábyrgir fyrir skráningu sinni.
  • Mótið er World Ranking mót og mikilvægt að keppendur hafi kynnt sér nýjustu útgáfu af keppnisreglum. Sjá nánar á vef LH og FEIF.
Skráningargjöld eru eftirfarandi:
  • 10.000 kr – fullorðinsflokkar og ungmennaflokkur
  • 8.500 kr – 150m & 250m skeið
  • 6.500 kr – 100m flugskeið
  • 6.500 kr – barna- og unglingaflokkur
  • 1.500 kr – pollaflokkur
Boðið verður upp á eftirfarandi flokkum:
  • Meistaraflokkur – T1, T3, T2, T4, V1, V2, F1, F2, PP1, P2
  • 1.flokkur – T3, V2, F2, T4, PP1, P2
  • Opinn flokkur og Ungmennaflokkur í básaskeiði – P1 & P3
  • Ungmennaflokkur – T1, T3, T2, T4, V1, V2, F1, F2, PP1, P2
  • Unglingaflokkur – V1, T1, F1, V2, F2, T3, T4 og T7, PP1
  • Barnaflokkur – V2, T4, T3 og T7
  • Pollaflokkur – Pollatölt

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar