Lydía og Arney verðlaunaðar

  • 25. maí 2025
  • Uncategorized @is
Í gær fór fram reiðsýning brautskráningarnema til BS prófs í reiðmennsku og reiðkennslu við Hóla

Tíu nemendur er að útskrifast með BS próf í reiðmennsku og reiðkennslu nú í vor. Venja er að nemendur ljúki námi sínu við Háskólann á Hólum með glæsilegri reiðsýningu á aðalreiðvelli skólans. Í augum flestra sem til þekkja markar reiðsýningin lokapunktinn í námi við hestafræðideild og stundin, þegar væntanlegir reiðkennarar klæðast bláa jakkanum í lok sýningar, er fyrir mörgum jafngildi brautskráningar. Fjölskyldur og vinir nemendanna fjölmenna gjarna heim að Hólum til að fagna með sínu fólki.

Að lokinni sýningu voru veitt tvenns konar viðurkenningar. Annars vegar Reiðmennskuverðlaun Félags tamingamanna sem eru veitt þeim nemanda, sem hefur hlotið hæstu einkunn á lokaprófi í reiðmennsku og var það að þessu sinni Lydía Þorgeirsdóttir sem hlaut Reiðmennskuverðlaun FT.

Arney Ólöf Arnarsdóttir fékk Morgunblaðshnakkurinn en hann fellur þeim nemanda í skaut sem er með hæstu meðaleinkunn í öllum reiðmennskunámskeiðum sem hann hefur lokið við skólann á námsferli sínum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar