Hátíðarblær í Víðidal
Hátíðarbragur er komin á landsmótssvæðið í Víðidal, fánar blakta við húna og kvöldsólin skín á þá knapa sem eru nú í óðaönn að æfa gæðinga sína.
Nú klukkan 18 munu keppendur koma saman á knapafundi þar sem farið verður yfir helstu reglur keppninnar.
Gæðingakeppnin hefst á Hvammsvelli fyrramálið kl. 9 á forkeppni í B-flokki en byrjað verður að dæma á kynbótavelli kl. 8, flokkur hryssa 7 vetra og eldri ríður á vaðið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH