Hestamannasamfélagið-

  • 22. nóvember 2010
  • Fréttir
Hestamannasamfélagið-

Það minnnti meira á einhverja bíómynd um „Amish“ fólkið í Bandaríkjunum heldur en lífið í hesthúsahverfi hér uppi á Íslandi…

þegar blaðamaður Eiðfaxa átti leið um hesthúsahverfið í Mosfellsbæ um helgina. Þar var allt á iði, fjöldi manns samankominn og þar sem fyrir nokkrum dögum síðan stóðu rjúkandi rústir eftir stórbruna, stendur nú bygging í fæðingu. Búið er að reysa veggi og húsið er að taka á sig mynd.
Þarna eru flestir að vinna sjálfboðavinnu og samhugur Harðarfélaga er mikill.
Það er ánægjulegt og fyllir hjarta manns þakklæti að sjá að þetta skuli vera mögulegt nú á tímum stress og álags. Eiðfaxi mun fylgjast með gangi mála.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link