Skráningu á Íslandsmót lýkur í kvöld
Íslandsmót fullorðinna og ungmenna í hestaíþróttum verður haldið á Brávöllum, Selfossi dagana 25.-29. júní nk. Nú liggur ljóst fyrir hversu margir hafa náð lágmörkum inn á mótið.
Skráningarfrestur á mótið rennur út í kvöld, 19. júní, og verður spennandi að sjá hverjir ætli sér að mæta sýna sig á hápunkti keppnistímabilsins hér á Íslandi.
Keppnisgreinarnar og lágmörkin á Íslandsmóti 2025 eru:
- Fjórgangur, V1 (Fullorðnir 7.00, ungmenni 6.50)
- Fimmgangur, F1 (Fullorðnir 6.80, ungmenni 6.10)
- Tölt, T1 (Fullorðnir 7.40, ungmenni 6.60)
- Slaktaumatölt, T2 (Fullorðnir 7.00, ungmenni 6.20
- Gæðingaskeið, PP1 (Fullorðnir 7.10, ungmenni 5.90)
- Skeið 250m, P1 (Opinn flokkur 24.80 sek, ungmenni 26.00 sek)
- Skeið 150m, P3 (Opinn flokkur 15.40 sek, ungmenni 17.00 sek)
- Skeið 100m, P2 (Fullorðnir 8.00 sek, ungmenni 9.00 sek)
Í fullorðinsflokk hafa 32 pör náð lágmarki í fjórgangi, 33 í fimmgangi, 30 í tölti og 27 í slaktaumatölti. Hvað skeiðgreinar varðar þá hafa 39 pör náð lágmarki í gæðingaskeiði, 24 í 100m skeiði, 26 í 150m skeiði og 17 í 250m skeiði.
Í ungmennaflokki hafa 25 pör náð lágmarki í fjórgangi, 23 í fimmgangi, 24 í tölti og 29 í slaktaumatölti. Í skeiðgreinum hafa 25 pör náð lágmarki í gæðingaskeiði, sextán í 100m skeiði, fjórir í 150m skeiði og níu í 250m skeiði.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts