Fréttatilkynning
„Vegna óviðráðanlegra aðstæðna, þar sem fresta þurfti Heimsmeistaramótsúrtökunni um einn dag, riðlast öll dagskrá mótsins og verður t.d. keppt á miðvikudeginum sem átti að vera hvíldardagur. Við þetta riðlast aðrar tímasetningar því nokkrir knapar, sem eru í heimsmeistaramótsúrtökunni, ætluðu að nýta miðvikudaginn til að sýna kynbótahross.
Vegna liðlegheita Bændasamtaka Íslands og Guðlaugs Antonssonar hrossaræktarráðunauts mega knapar sem eru í Heimsmeistaramótsúrtökunni fresta sýningum á kynbótahrossunum fram á laugardagsmorgun, en þá er hvíldardagur í úrtökunni. Dagskrá laugardagsins á Gullmótinu frestast til sunnudags og verða þá úrslit riðin í öllum flokkum.
Eftirtaldir knapar; Jakob Sigurðsson, Siguður V Matthíasson, Sigursteinn Sumarliðason og Viðar Ingólfsson mæta þá með sín kynbótahross á Miðfossa á laugardagsmorgunin og hefst sú sýning kl. 8:00 og yfirlit með öðrum seinna um daginn,“ segir í tilkynningu frá Gullmótinu