Opið Íþróttamót Þyts

  • 10. júlí 2025
  • Tilkynning
Fer fram 18 - 19 júlí

Opið íþróttamót Þyts verður haldið 18. og 19. júlí. Mótið verður haldið á Hvammstanga og skráning í gegnum Sportfeng.

Greinar:
4-gangur V2 og tölt T3 1. flokkur
4-gangur V5 og tölt T7 2. flokkur
4-gangur V2 og tölt T3 ungmennaflokkur (18-21 árs á keppnisárinu)
4-gangur V2 og tölt T3 unglingaflokkur (14-17 ára á keppnisárinu)
4-gangur V5 og tölt T7 barnaflokkur (10-13 ára á keppnisárinu)
Pollaflokkur (9 ára og yngri á árinu)
5-gangur 1. flokkur F2
Tölt T4 (einn flokkur)
Gæðingaskeið
100 metra skeið

Mótanefnd áskilar sér rétt til að sameina flokka eða fella niður ef ekki næst næg þáttaka. Skráningargjöld í fullorðinsflokka og ungmennaflokk eru 4.500 kr. Fyrir börn og unglinga 2.500 kr. Í skeiði er skráningargjaldið 4.000 kr á hest. Þeir sem eru með farandbikara mega koma þeim til mótanefndar áður en mótið hefst.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar