Sýnikennslukvöld 2. febrúar
Reiðhöllin Svaðastaðir á Sauðárkróki kynnir, í samvinnu við Hestamannafélagið Léttfeta og FT, sýnikennslu með Þórarni Eymundssyni tamningameistara…
Þórarinn ætlar að taka fyrir mismunandi hestgerðir og fara yfir hvernig hann leysir úr algengum vandamálum sem geta komið upp við þjálfun hesta.Sýningin fer fram miðvikudaginn 2. febrúar nk. og hefst kl. 20.
Léttfetafélagar verða með kaffisölu í hléi. Aðgangseyrir aðeins kr. 1.000.
Allir velkomnir.
Frítt fyrir 12 ára og yngri og skuldlausa FT félaga.
Allur aðgangseyrir rennur óskiptur til reiðhallarinnar.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV