Folaladasýning Harðar
„Hestamannafélagið Hörður stendur fyrir folaldasýningu föstudaginn 22. febrúar kl 19:00 í reiðhöll Harðar. Skráningar skal senda á netfangið [email protected] fyrir hádegi 21. febrúar. Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu hesta og 3 efstu merar. Áhorfendur velja glæsilegasta folald sýningarinnar. Skráning þarf að innihalda nafn folalds, litur, IS númer ef það er til staðar og foreldrar. Skráningargjald kr 2.000 greiðist á staðnum. Dómari verður Þorvaldur Kristjánsson. Seld verður kjötsúpa og drykkir svo það væri tilvalið að mæta beint úr hesthúsinu,“ segir í tilkynningu frá Kynbóta- og mótanefnd Harðar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH