Heimsins stærsti hestur –
Mynd: Associated Press.
Big Jake er 9 vetra geldingur af belgísku kyni. Hann býr á Smokey Hollow Farm, sem er búgarður nærri bænum Poynette í Wisconsin í Bandaríkjunum..
Jerry Gilbert, eigandi hestsins, fékk nýlega staðfestingu á því frá Guinness World Records að Big Jake væri heimsins stærsti hestur og sé tæpum sjö sentimetrum hærri en fyrrum heimsmethafi.
Hann er hvorki meira né minna en 210,185 cm á herðakamb og vegur rúmt tonn eða nánar tiltekið 1179,43 kg. Engin smá smíði þessi hestur, þó eigandinn lýsi honum sem „ljúfum risa“.
Sjá tvö myndbönd af Big Jake hér með í fréttinni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH