Aðventukvöld kvennadeildar Gusts
Nú er að koma að hinu árlega aðventukvöldi kvennadeildar Gusts.
Það verður haldið fimmtudaginn 8. desember kl. 19:30 í reiðhöll Gusts í Glaðheimum. Aðventukvöldið hefur verið geysivinsælt undanfarin ár og mjög notaleg stemning hjá hestkonum.
Dagskráin hefst kl. 20:00 en gestir kvöldsins eru Felix Bergsson, Lay Low og Hallgrímur Helgason.
Einnig verður happdrætti, Hanverk og hönnun og léttar veitingar. Aðgangseyrir er kr. 1.000.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH