Hrossaræktarfélag Biskupstungna
Fimmtudaginn 3. nóvember 2016 kl 19:00 ætlar Hrossaræktarfélag Biskupstungna að halda aðalfund og uppskeruhátíð í Hlöðuloftinu í Efstadal, þar sem þeir félagar sem lengst náðu í hrossarækt á árinu 2016 verða verðlaunaðir, gestur kvöldsins verður Bjarni Þorkelsson hrossaræktandi Þóroddsstöðum.
Dagskrá hefst kl 19.00
Aðalfundur:
• Hefðbundin aðalfundastörf og kosningar
• Vetrardagskrá kynnt
• Önnur mál
Kvöldverður
Uppskeruhátíð og verðlaunaafhendingar
Veitt verða verðlaun fyrir hæst dæmdu stóðhesta og hryssur ræktaðar af félagsmönnum, og hrossaræktarbú ársins er síðan verðlaunað.
• Gestur kvöldsins: Bjarni Þorkelsson hrossaræktandi á Þóroddsstöðum
Stjórnin
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH