Heimsmeistaramót Ný viðbót í HorseDay gefur brekkudómurum lausan tauminn

  • 4. ágúst 2025
  • Sjónvarp Fréttir
Viðtal við Odd Ólafsson hjá HorseDay

Oddur Ólafsson, framkvæmdastjóri HorseDay, er mættur á Heimsmeistaramót og Eiðfaxi ræddi við hann í dag um nýjustu viðbótina sem gefur brekkudómurum lausan tauminn. Hjá HorseDay verður hægt að fylgjast með mótinu með sérstaka áherslu á kynbótahluta mótsins.

Í viðtalinu hér að neðan má heyra Odd lýsa þessari skemmtilegu viðbót sem finna má nú í snjallforritinu. Nýja lausnin gerir notendum kleift að gefa kynbótahrossunum á mótinu einkunn bæði til gagns og gamans.  Þetta er liður í áframhaldandi þróun HorseDay sem vettvangs fyrir allt það helsta í hestaíþróttum og kynbótasýningum

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar