Pollaflokkur á Líflandsmótinu – skráning
Skráning í pollaflokk Líflandsmótsins, sem fram fer á morgun, fer fram í dag föstudaginn 15. apríl..
Skráningar skal senda á netfangið [email protected] er fram kemur í tilkynningu frá æskulýðsnefnd Fáks.
Við skráningu þarf að koma fram: Nafn knapa, aldur knapa, nafn hests, litur og aldur hests. Tilgreina þarf flokk sem á að skrá barnið í en þeir eru þrír, pollar teymdir, pollar tvígangur og pollar tölt.
Skráningu í pollaflokk lýkur kl. 21 í kvöld.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH