Fækka þarf hrossum á Landsmóti
Landsmótsnefnd lauk fundarherferð sinni kringum landið með fjölsóttum fundi á Blönduósi þriðjudagskvöldið 13. september. Þar var Húnvetningum og Skagfirðingum kynnt skýrsla nefndarinnar um Landsmótin, inntak hennar rædd og fundargestum gefin kostur á að viðra hugmyndir og skoðanir sínar um málefni Landsmóta.
Stefán Haraldsson, einn nefndamanna, segir að á Blönduósi hafi greinilega mátt merkja meiri tortryggni og styggð gagnvart skýrslu nefndarinnar en á öðrum fundum. „Það fór ekki framhjá okkur að þar höfðu menn eindregnustu skoðanirnar á þeirri tillögu að halda Landsmót tvisvar sinnum á Suðurlandi á móti hverju einu skipti á Norðurlandi. Tillagan var mikið gagnrýnd enda hafa menn áhyggjur og horfa í þá hagsmuni sem liggja að baki því að halda Landmót á tilteknum stað.“
Hann segir að almennt séð hafi skýrslunni verið vel tekið í fundarherferðinni og margir áhugaverðir vinklar hafi komið fram hjá fundarmönnum. „Það var fróðlegt fyrir nefndina að upplifa viðbrögð við skýrslunni. Þau voru fjölbreytileg og misjöfn eftir landssvæðum. Menn vilja greinilega taka allmörg atriði til til skoðunar. Fólk var almennt sammála um að mótin væru orðin of löng og ofhlaðin. Hrossunum þyrfti að fækka bæði í gæðingakeppni og kynbótadómum. Til að það geti gerst þarf að gera breyting á reglum LH um fjölda hrossa og keppenda frá hestamannafélögunum. Einnig þarf Fagráð í hrossarækt að fara yfir kynbótaþátt Landsmóta, og koma fram með hugmyndir að markvissara sýningarhaldi,“ segir Stefán.
Vænta má að einhver þeirra málefna sem rædd voru í fundarherferðinni verði tekin upp á Formannafundi LH sem haldinn verður föstudaginn 4. nóvember nk.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH