Yfirburðasigur Sigurðar og Loka

  • 14. febrúar 2013
  • Fréttir
Yfirburðasigur Sigurðar og Loka

Sigurður Sigurðarson vann gæðingafimi Meistaradeildar með yfirburðum. Loki frá Selfossi var klárlega flottasti hestur kvöldsins og reið Sigurður úrslitin eins og sannur meistari. Útgeislunin, fasið og fótaburðurinn ásamt frábærri reiðmennsku var það sem skilaði þessum sigri í kvöld.

Guðmundur og Hrímnir urðu í öðru sæti líkt og í fjórgangnum, en sýning þeirra var talsvert betri en í forkeppninni utan þess að stökkið misheppnaðist því að Hrímnir kýrstökk heila langhlið. Það kom ekki að sök því að einungis eru dæmdar bestu þrjár gangtegundirnar.

Olil var með mjög örugga sýningu en samt virtist skorta talsvert á þá útgeislun og frjálsræði í fasi eins og einkenndi þá Loka og Hrímni. En ekkert skorti á flottheitin hjá þeim Þorvaldi og Stjörnu sem enduðu fjórðu,  þó svo að hún búi ekki yfir eins góðum gangtegundum og efstu þrjú hrossin utan þess að töltið er klárlega með því besta sem sýnt var í kvöld.

Það kom mörgum á óvart að þeir Sigurbjörn og Jarl skildu ná inn í úrslit enda sýndi það sig að hann átti aldrei möguleika á móti hestunum fyrir ofan sig þó svo að aldrei sé hægt að afskrifa Sigurbjörn. Þeir Jarl enduðu fimmtu og voru talsvert frá hestunum í 2-4 sæti.

Úrslit gæðingafiminnar urðu:

Úrslit

1. Sigurður Sigurðarson – Loki frá Selfossi – 8,30

2. Guðmundur F. Björgvinsson – Hrímnir frá Ósi – 7,77

3. Olil Amble – Kraflar frá Ketilsstöðum – 7,74

4. Þorvaldur Árni Þorvaldsson – Stjarna frá Stóra-Hofi – 7,70

5. Sigurbjörn Bárðarson – Jarl frá Mið-Fossum – 7,54

Það er erfitt fyrir leikmann að gera sér grein fyrir hvað er rétt og hvað er rangt í þessari keppni en eins og fyrr sagði var hægt að setja spurningarmerki við hvort Viðar Ingólfsson og Már frá Feti eða Árni Björn Pálsson og Stormur frá Herríðarhóli hefðu frekar átt erindi í úrslit en Sigurbjörn og Jarl. Bæði þessi pör áttu frábært kvöld með faglegar og fágaðar sýningar. Már hefur sjaldan verið eins heillandi og í kvöld en líklegt má telja að þeir félagar taki stefnuna á HM2013 í Berlín. Íslandsmeistarinn í tölti Stormur er með fasmestu hestum en líklegt má telja að aðeins hafi skort upp á gæði annarra gangtegunda en tölts til að blanda sér meðal þeirra allra fremstu.

6             Viðar Ingólfsson              Már frá Feti        7,4

7             Jokob S. Sigurðsson       Eldur frá Köldukinn         7,11

7             Árni Björn           Stormur frá Herríðarhóli              7,11

9             Anna Valdimars               Krókur frá Ytra-Dalsgerði             6,99

10           Hulda Gústafs   Ketill frá Kvistum             6,91

11           Ragnar Tómasson           Sleipnir frá Árnanesi      6,88

12           Eyjólfur Þorsteinsson    Klerkur frá Bjarnanesi   6,82

13           Ólafur B Ásgeirsson        Hugleikur frá Galtanesi 6,53

14           Sylvía Sigurbjörnsdóttir                Héðinn-Skúli frá Oddhóli             6,52

15           Reynir Örn Pálmason     Baldvin frá Stangarholti                6,51

16           Gústaf Ásgeir    Naskur frá Búlandi          6,49

17           Sigurður V. Matthíasson              Svalur frá Litlu-Sandvík 6,47

18           John Kristinn     Kraftur frá Blesastöðum 1A        6,41

19           Bergur Jónsson                Ljóni frá Ketilsstöðum   6,37

20           Þórdís Erla Gunnarsdóttir            Ösp frá Enni       6,35

21           Elvar Þormarsson            Skuggi frá Strandarhjáleigu         5,83

22           Ævar Örn             Veigur frá Eystri-Hól       5,71

23           Anna Björk Ólafsdóttir  Glúmur frá Svarfhóli      5,12

24           Daníel Ingi Smárason     Silfur-Daddi frá Lækjarbakka      4,91

[email protected]

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link