Barna og unglingastarf Æskulýðsnefndar Sleipnis 2013
„Æskulýðsnefnd Sleipnis stendur fyrir öflugu barna og unglingastarfi.
Skráning á námskeið nú um áramótin var mjög góð og eru nú 35 börn, unglingar og ungmenni á námskeiðum en alls eru í gangi 40 námskeiðseiningar en einnig verða haldin vornámskeið. Æskulýðsnefnd mun einnig vera í forsvari fyrir Hestafjör 2013 og stendur skráning yfir til 28. feb. Þátttaka í Hestafjörinu er þátttakendum að kostnaðarlausu. Reiðkennarar hjá Sleipni eru allir með reiðkennararéttindi en þeir eru: Ragnhildur Haraldsdóttir, Rósa Birna Þorvaldsdóttir, Hugrún Jóhannsdóttir og Páll Bragi Hólmarsson.
Nú þegar dimmasti tími ársins fer í hönd tókum við eftir að mikil þörf var á að unga fólkið okkar væri sýnilegra og í samvinnu við Sjóvá var gengið í að útvega öllum börnum á námskeiðum endurskinsvesti til að nota í skammdeginu og þegar kvölda tekur,“ segir í tilkynningu frá Æskulýðsnefnd Sleipnis
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH