Aðalfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands
„Aðalfundur Hrossaræktarsamtaka Suðurlands verður miðvikudagskvöldið 20. febrúar kl. 20:30 í Hliðskjálf félagsheimili hestamannafélagsins Sleipnis á Selfossi (í hesthúsahverfinu, Suðurtröð). Dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf. Úr stjórn eiga að ganga Birgir Leó Ólafsson og María Þórarinsdóttir, þau gefa bæði kost á sér áfram. Gestur fundarins verður að þessu sinni Heimir Gunnarsson, reiðkennari hjá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri.
Rétt er að benda á að fundargerðir stjórnar eru aðgengilegar á slóðinni www.bssl.is en þar eru Hrossaræktarsamtökin með síðu. Vonumst til að sjá ykkur sem flest á aðalfundinum,“ segir í tilkynningu frá Stjórn Hrossaræktarsamtaka Suðurlands
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH