Skráning á opið þrígangsmót framlengd
„Skráning á opið þrígangsmót Lýsis í reiðhöllinni á Kjóavöllum hefur verið framlengd til miðnættis í kvöld fimmtudag.
Hestamannafélagið Sprettur heldur opið þrígangsmót í reiðhöll Andvara nk. föstudag. Mótið hefst kl. 17 og boðið er upp á keppni í fjórum flokkum:
17 ára og yngri
Minna vanir
Meira vanir
Opinn flokkur
Sýna á fegurðartölt, brokk og stökk. Ef 20 eða fleiri skrá í einhvern flokk verður boðið upp á B-úrslit.
Einnig verður glæsilegasta parið valið úr hópi keppenda og hlýtur það vegleg verðlaun frá Líflandi.
Skráningargjald er kr. 3.500 á hest og skráning fer eingöngu fram rafrænt gegn greiðslu með kreditkorti.
Skráning fer fram á www.sportfengur.com undir Skráningarkerfi. Þar skal velja hestamannafélagið Gust og svo velja viðburðinn Þrígangsmót.
Þegar búið er að fylla inn upplýsingar og skrá í vörukörfu þarf að smella á vörukörfuna til að fara í greiðslukerfið. Þegar greiðslu er lokið ætti kvittun að berast með tölvupósti og staðfestir hún skráninguna.
Skráningu lýkur á miðnætti í kvöld, fimmtudaginn 21. febrúar! Allir með :),“segir í tilkynningu frá aðstandendum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH