Lengdur skráningarfrestur
Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að lengja skráningarfrest til kl 23:59 í kvöld þriðjudag 5.feb og fer fram á heimasíðu Geysis www.hmfgeysir.is (þar ýtir þú á hnappinn skráningarkerfi, velja skráning, svo mót,svo félag(Geysir) síðan fylla út alla reiti). Skráningargjald er 4000 kr og greiðist um leið og skráð er.
Ef vandræði koma upp er hægt að hringja í 8637130 ÁÐUR en skráningu lýkur.
Ráslistar koma svo í hádeginu á morgun miðvikudag.
Fyrsta mótið í Hófadyns mótaröðinni verður haldið í Rangárhöllinni á Hellu, miðvikudaginn 6. febrúar og hefst klukkan 18:00.
Að þessu sinni verður keppt í fjórgangi.
Næsta mót verður fimmgangur og haldið þann 8.mars.
Þriðja og síðasta mótið verður töltfimi og verður haldið 10.apríl.
Verða þau nánar auglýst síðar.
100.000 kr. verðlaun verða fyrir 1. sæti, samanlagt úr öllum mótunum.
50.000 kr. verðlaun verða fyrir 2. sæti, samanlagt úr öllum mótunum.
25.000 kr. verðlaun verða fyrir 3. sæti, samanlagt úr öllum mótunum.
Folatolla uppboð verður milli atriða. Tollar undir viðurkennda glæsihesta.
Á miðvikudag 6.feb þegar keppt verður í fjórgangi, mun verða boðinn upp folatollur undir Jarl frá Árbæjarhjáleigu.
Aðgangseyri verður 500 kr. og gildir miðinn sem happdrættismiði, dregið verður úr seldum miðum á seinasta mótinu. Mjög veglegir vinningar.
Aðalstyrktaraðili er:
Búaðföng ehf Stórólfsvöllum 860 Hvolsvöllur sem gefur að auki veglegan verðlaunagrip fyrir samanlagðan sigurvegara.
Aðrir styrktaraðilar eru:
1. Hrossaræktarbúið Velli. Arndís Pétursdóttir Velli 2 861 Hvölsvöllur.
2. Kanslarinn. Dynskálum 10c 850 Hella.
3. Bílaþjónustan. Dynskálum 24 850 Hella.
4. Bílaverkstæðið Rauðalæk ehf. Rauðalæk 851 Hella.
5. Pakkhúsið Hellu ehf. Suðurlandsvegi 4 850 Hella.
6. Sláturfélag Suðurlands/Guðmundur Svavarsson. Ormsvelli 8 860 Hvolsvöllur.
7. Baldvin og Þorvaldur. Austurvegi 56 800 Selfoss.
8. Hótel Rangá. Suðurlandsvegi 851 Hella.
9. Hestheimar ehf. Hestheimum 851 Hella
10. Steinsholt sf. Suðurlandsvegi 1 850 Hella
11. Mjólkursamsalan MS. Bitruhálsi 1. 110 Rvk
12. Sláturhúsið Hellu ehf. Suðurlandsvegi 8. 850 Hella
13. Kökuval ehf. Þingskálum 4 850 Hella
Aðrir styrkir:
Glerverksmiðjan Samverk Hellu 9 stk. verðlaunagripir
Hrossaræktarbúið Eystra-Fróðholti folatollur undir Arion frá Eystra-Fróðholti
Hrossaræktarbúið Árbæjarhjáleigu folatollur undir Jarl frá Árbæjarhjáleigu
Hrossaræktarbúið Kirkjubæ folatollur undir Sjóð frá Kirkjubæ
Hrossaræktarbúið Ármóti folatollur undir Son frá Kálfhóli
Hrossaræktarbúið Hákoti folatollur undir Hrafnagaldur frá Hákoti
Hrossaræktarbúið Miðkot folatollur undir Stæl frá Miðkoti
Hestasundlaugin Áskoti gefur 10 tíma í sund
Nefndin
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH