Hrói frá Flekkudal seldur
Hrói frá Flekkudal er seldur en hann fer til Svíþjóðar nú í haust. Það voru þau Göran og Viveca Montan á Margrétarhofi sem keyptu Hróa en þau keyptu líka helminginn í Bliku frá Hjallanesi sem fer einnig út til þeirra.
Hrói og Blika munu bæði verða notuð í keppni þarna úti. Blika er orðin velreynd á keppnisbrautinni en Birgitta Bjarnadóttir hefur verið að keppa á henni undanfarin ár í yngri flokkunum. Þær urðu m.a. Íslandsmeistarar í fjórgangi, tölti og samanlögðum fjórgangsgreinum í ár.
Hrói mun vera stíga sín fyrstu skref á keppnisbrautinn en hann er með háan kynbótadóm. Jón Páll Sveinsson sem hefur verið með Hróa í þjálfun í ár sýndi hann í Hafnarfirði í vor þar sem hann hlaut 8,44 í aðaleinkunn. Hann hlaut 8,73 fyrir hæfileika – fékk fjórar 9,0, fyrir brokk, skeið, fegurð í reið og vilja og geðslag.
Við óskum nýjum eigendum til hamingju með þessa gæðinga.
Birgitta Bjarnadóttir og Blika frá Hjallanesi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH