Meistaradeild VÍS hefst á fimmtudag
Keppni í Meistaradeild VÍS hefst næstkomandi fimmtudag, 28. janúar, í Ölfushöllinni klukkan 19.30. Keppt verður í Smala/hraðafimi, sem er þrautakeppni þar sem reynir á fimi, jafnvægi og samspil manns og hests.
Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum er mótaröð sjö móta, sem haldin eru annan hvern fimtudag frá 28. janúar fram í lok apríl. Keppendur eru allt knapar í fremstu röð. Meistaradeild í hestaíþróttum er rekin af félagi áhugamanna með sama nafni og dyggilega studd af Vátryggingafélagi Íslands. Að venju sér RÚV um gerð sjónvarpsþáttar sem sýndur er eftir hvert mót og beinar útsendingar verða á vef Hestafrétta.
Keppnin er liða- og einstaklingskeppni. Liðin eru sjö og þrír knapar í hverju liði. Liðin sem keppa að þessu sinni eru: Auðsholtshjáleiga, Árbakki/Hestvit, Frumherji, Lífland, Lýsi, Málning og Top Reiter.
Dagskrá Meistaradeildar VÍS 2010:
Hraðfimi / smali Ölfushöll 28. janúar
Fjórgangur Ölfushöll 11. febrúar
Slaktaumatölt Ölfushöll 25. febrúar
Gæðingafimi Ölfushöll 11. mars
Fimmgangur Ölfushöll 25. mars
150m skeið, gæðingaskeið og stóðhestasýning 10. apríl
Tölt (T1) og flugskeið Ölfushöll 22. apríl (Sumardaginn fyrsta)
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH