Vestri og Una tóku fyrstu sætin
Árleg folaldasýning félagsins fór fram í Reiðhöllinni á Flúðum sunnudaginn 9. nóvember s.l. Dómari var Hallgrímur Birkisson í Kirkjubæ.
Þátttaka var ágæt 21 folald mætti til leiks og var ætterni þeirra fjölbreytt, nokkrir hæst dæmdu hestar undanfarina ára og sigur sælir keppnishestar áttu þarna afkvæmi. Dómari raðaði í 3 efstu sæti í hest og merfolalda flokkum og áhorfendur kusu svo glæsilegasta folaldið og er það til marks um hvað folöldin voru jöfn að dreyfing atkvæða var mun meiri en undanfarin ár.
Úrslit voru sem hér segir:
Hestfolöld:
1. Vestri frá Túnsbergi, brúnn.
F: Loki frá Selfossi
M: Viska frá Túnsbergi
Ræktandi og eigandi Bragi Viðar Gunnarsson.
2. Glampi frá Miðfelli 5, brúnskjóttur
F: Lukku-Láki frá Stóra Vatnsskarði
M: Hrafntinna Miðfelli 5
Ræktandi og eigandi Magnús Gunnlaugsson
3. Draupnir frá Unnarholtskoti, Rauðtvístörnóttur
F: Amper frá Kílhrauni
M: Dögg frá Ásólfsstöðum
Ræktandi og eigandi Kristín Erla Ingimarsdóttir
Merfolöld:
1. Una frá Hrepphólum – Brún
F: Bikar frá Syðri – Reykjum
M: Gyðja frá Hrepphólum
Ræktandi og eigandi Hulda Hrönn Stefánsdóttir
2. Hetja frá Haukholtum, rauðblesótt,
F: Krákur frá Blesastöðum
M: Elding frá Haukholtum,
Ræktandi: Magnús Helgi Loftsson, eigandi: Alina Elena Balusanu
3. Hátíð frá Skollagróf, bleikálótt
F: Rammi frá Búlandi
M: Virðing frá Skollagróf
Ræktendur og eigandur Sigurður Haukur Jónsson og Helgi Valdimar Sigurðsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH