Íþróttamót Dreyra

  • 9. ágúst 2012
  • Fréttir
Íþróttamót Dreyra

Íþróttamót hestamannafélagsins Dreyra verður haldið í Æðarodda, við Akranes dagana 16.-19. ágúst n.k. Tímasetning og nánari dagskrá verður kynnt þegar skráning liggur fyrir. Upplýsingar verða kynntar á www. ia.is (undir hestamennska)

Skráning fer fram sunnudaginn 12. ágúst. Frá klukkan 19:30-22:00 er tekið á móti skráningu í síma 867 1668 og 8609794. Einnig er hægt að senda skráningu í tölvupósti á netfangið [email protected] fyrir kl 23:30 sama dag. Umsjón með skráningu hefur Kristín Frímannsdóttir. Skráningargjöld eru 5.000.- fyrir hverja keppnisgrein. Reiknisnúmerið er 0552-14-601933 og Kt: 450382-0359. Senda þarf kvittun í tölvupósti á [email protected]. Skýring: Nafn og kt. knapa sem greitt er fyrir. Greiðsla þarf að hafa borist fyrir kl 16:00 þriðjudaginn 14. ágúst.
 
Við skráningu þarf eftirfarandi að koma fram:
Nafn hests og IS númer
Hestamannafélag sem keppt er fyrir
Keppnisgreinar
Hver sé greiðandi, ef það er ekki knapinn sjálfur.
 
Keppnisgreinar:
 
Fimmgangur í 1. flokk, 2. flokk, ungmennaflokk, unglingaflokki
Fjórgangur í 1. flokk, 2flokk, ungmennaflokk, unglingaflokk, barnaflokk
Tölti í 1.flokk, 2. flokk, ungmennaflokk, unglingaflokk, barnaflokk
T2 í 1. flokk, 2. flokk, ungmennaflokk
Gæðingaskeið í 1. flokk, 2. flokk, ungmennaflokk, unglingaflokk
100m skeið
150m skeið
 
Áskilin er réttur til að sameina flokka ef skráning er lítill í einstaka greinum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link