Folaldasýning Sörla 2016
Minnum á eina stærstu folaldasýningu ársins, en hún verður haldin á Sörlastöðum, félagssvæði hestamannafélagsins Sörla Hfj, laugardaginn 5 mars n.k.
Vegleg verðlaun eru í boði og folatollauppboð verður á þekktum stóðhestum. Skráning er i fullum gangi og lýkur á miðnætti, fimmtudaginn 3.mars.
Skráningar skal senda á netfangið [email protected].
Við skráningu þarf eftirfarandi að koma fram:
-Nafn folalds, uppruni og IS númer
-Nöfn móður og föður folalds
-Litur
-Eigandi og ræktandi folalds
Skráningargjald fyrir folald er 2.000 kr og skráning er ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist. Greiða skal inn á reikning: 0545-26-3615, kennitala: 6402696509.
Vinsamlegast sendið staðfestingu á netfangið [email protected] með nafn folalds sem skýringu.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH