Lokasýning eftir starf vetrarins á reiðnámskeiðunum fyrir börn og ungmenni með fötlun

  • 4. júní 2013
  • Fréttir
Lokasýning eftir starf vetrarins á reiðnámskeiðunum fyrir börn og ungmenni með fötlun
“Góðan daginn 
Langar að vekja athygli á viðburði sem verður núna á morgun þriðjudaginn 4.júní frá kl. 17:30 – ca 20:00 í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ en þá  ætlum við að bjóða öllum nemendum vetrarins, vinum og vandamönnum að koma og gleðjast með okkur í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ. Nemendum vetrarins gefst kostur á að vera með í sýningu þar sem þeir sýna vinum og vandamönnum það sem þeir hafa áorkað í vetur sem er nú ekki lítið. 
 
Nemendum hjá okkur á námskeiðunum hafa farið fjölgandi og virkilega gaman að sjá hversu ótrúlega fjölbreyttur hópur sækir námskeiðin og hvað þau taka ótrúlegum framförum í reiðmennsku – hver á sínum forsendum.
 
Eftir að nemendur hafa lokið sýningu þá munum við bjóða upp á atriði þar sem hið einstaka samband manns og hests verður sýnt á fjölbreyttan og stórkostlegan hátt — það má enginn missa af því ! 
 
Boðið verður upp á grillaðar pylsur og með því!
 
Hlakka til að sjá sem flesta  og fagna frábærum liðnum vetri með okkur :D,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link