Meistaradeild UMFÍ – æfingatímar
Á morgun laugardaginn 21. mars kl. 11:00 verður keppt í Rangárhöllinni í smala og fjórgangi. Smalabrautin er nú tilbúin og gefst keppendum kostur á að æfa í dag, en húsið verður opið til kl. 22:00 og frá kl. 8:00 á morgun til kl. 10:00. Húsvörður Hallarinnar hefur upplýsingar um hvernig á að ríða smalabrautina. Einnig hangir uppi teikning af brautinni. Eins og áður er aðgangur ókeypis fyrir þá sem vilja sjá meistaradeildarknapa nútíðar og framtíðarinnar spreyta sig.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH