Mikil óánægja knapa
Mikil óánægja er meðal knapa um ákvörðun mótstjórnar Gullmótsins um að fresta úrtökunni til morguns.
Í yfirlýsingunni sem gefinver út þá þurkast allur árangur mótsins í dag út og byrjað verður upp á nýtt í fyrramálið. Þeir sem illa gekk hjá í dag eru augljóslega ánægðir með þessa ákvörðun, en þeir sem gerðu það gott í dag eru margir hverjir ósáttir.
Á fundinum kom einnig fram tillaga frá Huldu Geirsdóttur að knapar gætu ráðið sjálfir hvort þeir vildu að árangur dagsins í dag stæði eða ekki. Lögfróðir segja engar reglur ná yfir atvik sem þetta og sumir segja að ekki sé hægt að ógilda árangur sem náðist í löglegu móti og allir hafi setið við sama borð hvað aðstæður varðar.
Sumir knapar eiga að sýna kynbótahross á Miðfossum á morgun en búið er að hafa samband við fulltrúa RML og verið er að vinna í að finna lausn á þeim árekstrum sem orðið geta vegna þessa.
Mótsstjórn Gullmótsins mun senda frá sér tilkynningu um leið og málin skýrast og birtum við hana um leið og hún berst.