„Reynum að standa okkur fyrir land og þjóð“ – viðtal við Hinrik Bragason-
Síðastliðin tvö ár hefur Hinrik Bragason þjálfað Glym frá Flekkudal með það fyrir augum að komast á Heimsmeistaramótið í Austurríki. Í vor varð Glymur hins vegar fyrir meiðslum sem gerði út um þá áætlun Hinriks. Enn með löngun í landsliðssæti stillti hann Sigri frá Hólabaki upp á Íslandsmótið á Selfossi, kom þar sá og sigraði fjórgangskeppnina og hreppti svo miða á Heimsmeistaramót.
“Ég varð fyrir gríðarlegum vonbrigðum þegar Glymur varð fyrir smávægilegum meiðslum, sem varð til þess að hann þurfti nokkrar vikur til að jafna sig. Þá þurfti ég að hafa snör handtök, hugsa hvað ég gæti gert við minn hestakost til að banka á landsliðið. Ég gerði mér strax grein fyrir því að ef Sigur héldi áfram að þróast eins og hann var búin að vera að gera, þá ættum við örugglega raunhæfa möguleika. Hann hefur svo margt með sér, bæði útgeislun og svo er hann gríðarlega hæfileikaríkur og jákvæður. Ég vissi samt alveg upp á hár að til þess að eiga möguleika yrði ég að vinna aðra hvora greinina á Íslandsmóti, fjórganginn eða töltið. Mér fannst líklegra að ég gæti unnið fjórganginn miðað við hvernig Sigur hafði þróast,” segir Hinrik en skemmst er frá því að segja að þeir uppskáru Íslandsmeistaratitil í fjórgangi eftir að hafa komið inn í úrslit í 5. sæti.
“Ég er náttúrulega gríðarlega ánægður með útkomuna. Ég var að keppa við rosalega hæfa og góða knapa. Stundum falla hlutirnir með manni og í þetta skiptið féll það með mér,” segir Hinrik og er að vonum ánægður að fá að takast á við hið stóra verkefni ásamt eiginkonu sinni, Huldu Gústafsdóttur. “Við vorum saman í landsliðinu á HM fyrir 16 árum síðan, árið 1995. Það er ofboðslega gaman að fá það tækifæri aftur og gefur okkur mikinn styrk enda hjálpum hvort öðru mjög mikið við þjálfun og undirbúning.”
Hinrik segist vera í góðu jafnvægi og hlakki til að takast á við Heimsmeistaramót. “Ég hef undirbúið mig andlega undir þetta ákveðna verkefni í hartnær tvö ár. Sá undirbúningur miðaðist við Glym og nú er ég byrjaður að færa hann yfir á Sigur. Ég er í fínu jafnvægi og mér hefur gengið vel að keppa í sumar. Ég fer því fullur tilhlökkunar á mótið og við reynum að standa okkur fyrir land og þjóð og gera okkar allra besta.”
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH