Fyrstu vetrarleikarnir

  • 12. febrúar 2013
  • Fréttir
Fyrstu vetrarleikarnir

„Fyrstu vetrarleikar ársins hjá nýju sameinuðu hestamannafélagi á Kjóavöllum fara fram nk. laugardag, 16. febrúar.

Kl. 13 hefst keppni í reiðhöllinni (Andvaramegin) á pollaflokki og barnaflokki og kl. 14 hefst svo keppni í öðrum flokkum.

Keppt verður á nýjum keppnisvelli félagsins í fyrsta skipti. 
 
Boðið verður upp á keppni í eftirtöldum flokkum í þessari röð:
 
Kl. 13 í reiðhöll:
Pollar (9 ára og yngri) – teymdir og ríða sjálfir
Börn (10-13 ára)
 
Kl. 14 á nýja hringvellinum:
Unglingar (14-17 ára)
Ungmenni (18-21 árs)
Konur II – minna keppnisvanar
Karlar II – minna keppnisvanir
Heldri menn og konur (+50 ára)
Konur I – meira keppnisvanar
Karlar I – meira keppnisvanir
Opinn flokkur (karlar og konur)
 
Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra. 
Einungis er hægt að skrá sig í einn flokk. 
 
Mótið er hið fyrsta af þriggja móta vetrarmótaröð. Verðlaun verða veitt á hverju móti fyrir sig og svo verða samanlagðir sigurvegarar allra þriggja móta líka verðlaunaðir á síðasta mótinu. 
 
Skráningargjöld eru: Frítt fyrir polla, 500 kr. fyrir börn og unglinga, 1.000 kr. fyrir aðra. 
Skráning fer fram í félagsheimili Andvara á milli kl. 11 og 12 á mótsdag. 
 
ATH! Þeir sem eru með keppnisnúmer hjá sér eru beðnir að mæta með þau til skráningar. Mikill skortur er á númerum!
 
Með von um að sem flestir mæti og taki þátt í fyrsta móti félagsins, á nýjum velli á flottu framtíðarsvæði okkar,“ segir í tilkynnigu frá Mótanefnd Hmf. Kjóavöllum 
 
 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link