Efsta-Sel ræktunarbú Spretts 2025
Uppskeruhátíð ræktunarnefndar Spretts fór fram þann 15. nóvember í veislusal félagsins.
Á árinu var sýndur fjöldinn allur af hrossum ræktuðum af skuldlausum félagsmönnum Spretts. Mikil gróska er í ræktun félagsmanna sem sjá má af fjölda þeirra hrossa sem skilaði sér til dóms á árinu.
Veitt voru verðlaun til þriggja efstu hrossa í hverjum flokki. Auk þess ákvað ræktunarnefnd Spretts að veita ungum Sprettara, henni Aniku Hrund Ómarsdóttur viðurkenningu ungs sýnanda fyrir stórgóðar sýningar á Sólmyrkvu frá Álfhólum og Náttfara frá Álfhólum. Hannesi Hjartarsyni fyrrum formanni ræktunarnefndarinnar var veitt viðurkenning fyrir hans störf í þágu ræktunarnefndarinnar en hann hefur haft veg og vanda af flestum þeim viðburðum sem nefndin hefur staðir fyrir síðustu ár.

Anika Hrund Ómarsdóttir hlaut viðurkenningu sem ungur sýnandi
Gunnar Arnarsson og Kristbjörg Eyvindsdóttir héldu erindi um sögu hrossaræktar þeirra hjóna í 35 ár að Auðsholtsjáleigu. Virkilega skemmtilegt og fróðlegt erindi um magnaða ræktunarsögu og árangur.
Eftirfarandi hross voru verðlaunuð eftir flokkum.
| ALDURSFLOKKUR | FAEDINGARNUMER | HROSS | UPPRUNI | AE |
| 7 vetra og eldri stóðhestar | IS2017182581 | Gýmir | frá Skúfslæk | 8.55 |
| 7 vetra og eldri stóðhestar | IS2016101056 | Þór | frá Hekluflötum | 8.35 |
| 7 vetra og eldri stóðhestar | IS2018165791 | Sporður | frá Ytra-Dalsgerði | 8.17 |
| 7 vetra og eldri hryssur | IS2018288560 | Kempa | frá Kjarnholtum I | 8.64 |
| 7 vetra og eldri hryssur | IS2018280469 | Lára | Eystri-Hól | 8.49 |
| 7 vetra og eldri hryssur | IS2015238170 | Hrönn | frá Stóra-Múla | 8.46 |
| 6 vetra stóðhestar | IS2019181522 | Skuggi | frá Sumarliðabæ 2 | 8.56 |
| 6 vetra stóðhestar | IS2019180326 | Fálki | frá Traðarlandi | 8.53 |
| 6 vetra stóðhestar | IS2019184171 | Spaði | frá Fornusöndum | 8.50 |
| 6 vetra hryssur | IS2019284981 | Vala | frá Vindási | 8.76 |
| 6 vetra hryssur | IS2019286184 | Sparta | frá Eystra-Fróðholti | 8.63 |
| 6 vetra hryssur | IS2019281512 | Líf | frá Sumarliðabæ 2 | 8.54 |
| 5 vetra stóðhestar | IS2020186644 | Dalvar | frá Efsta-Seli | 8.99 |
| 5 vetra stóðhestar | IS2020182315 | Viktor | frá Hamarsey | 8.53 |
| 5 vetra stóðhestar | IS2020156818 | Fleygur | frá Geitaskarði | 8.43 |
| 5 vetra hryssur | IS2020281513 | Alda | frá Sumarliðabæ 2 | 8.71 |
| 5 vetra hryssur | IS2020281514 | Ragna | frá Sumarliðabæ 2 | 8.57 |
| 5 vetra hryssur | IS2020282594 | Stjarna | frá Breiðholti í Flóa | 8.34 |
| 4 vetra stóðhestar | IS2021187645 | Kopar | frá Laugarbökkum | 8.23 |
| 4 vetra stóðhestar | IS2021156813 | Auður | frá Geitaskarði | 8.16 |
| 4 vetra stóðhestar | IS2021181514 | Bassi | frá Sumarliðabæ 2 | 8.13 |
| 4 vetra hryssur | IS2021282593 | Snilld | frá Breiðholti í Flóa | 8.27 |
| 4 vetra hryssur | IS2021249201 | Blæja | frá Bjarnarnesi | 8.23 |
| 4 vetra hryssur | IS2021258720 | Ósk | frá Hjaltastöðum | 8.03 |
Hæst dæmda hross Spretts árið 2025 er Dalvar frá Efsta-Seli undan Lóu frá Efsta-Seli og Adrian frá Syðra Garðshorni á Þelamörk og er hann jafnframt hæst dæmdi 5 vetra stóðhestur frá upphafi. Hann hlaut 8.99 i aðaleinkunn, 9.01 fyrir bygging og 8.98 fyrir hæfileika.
Ræktunarbú Spretts 2025 er Efsta-Sel en frá búinu voru sýnd 5 hross og telja 4 þeirra til stiga með aldursleiðrétta meðaleinkunn uppá 8.54. Hæst ber að nefna Dalvar frá Efsta Seli með aldursleiðrétta meðaleinkunn uppá hvorki meira né minna en 9.14. Hin hrossin eru Eldir, Gustur og Líf frá Efsta-Seli. Meðalaldur þessara 4 hrossar er 5.25 ár. Ræktendur hrossanna eru Hilmar Sæmundsson og Daníel Jónsson.
Efsta-Sel ræktunarbú Spretts 2025
Skagfirðingur hlýtur æskulýðsbikar LH 2025
Sigursteinn Sumarliðason knapi ársins hjá Sleipni