Lífland opnar á Korputorgi

  • 21. nóvember 2025
  • Sjónvarp Fréttir
Ný 1000 fermetra verslun

Núna í morgun opnaði ný og glæsileg verslun Líflands á Korputorgi. Með góðu og samstilltu átaki samhents hóps náðist að hanna og setja upp nýja verslun á mettíma. Þar með er lokið 27 ára tilveru verslunar í Lynghálsi 3, versluninni sem hóf starfsemi undir merkjum MR-búðarinnar 1998.

Nýja verslunin er 1000 fermetrar að grunnfleti, eða um 20% stærri en verslunin í Lynghálsi og í rýminu er bæði bjart og hátt til lofts. Í nýja rýminu er ýmsum vörum gerð mun betri skil en á fyrri stað, enda höfðu margir vöruflokkar vaxið mikið á liðnum árum og voru búnir að sprengja af sér fyrra húsnæði.

Verslun Líflands, Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík er opin:
Mánudaga til föstudaga frá kl: 9:00 til 17:00
Laugardaga frá kl: 10:00 til 15:00

Blaðamaður Eiðfaxa kíkti á nýju verslunina og spjallaði við Arnar Þórisson forstjóra.

Opnunarhátíð verður 26 nóvember. 20% afsláttur af öllu í búðinni nema af undirburði og hnökkum.
Kvennakvöld Líflands verður 4. Desember klukkan 18:00-21:00. Þá verður tískusýning, happadrætti og afslættir af vörum í verslun.

Símanúmer verslunar er: 540-1125

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar