Landsmót 2026 Tjaldsvæði á Landsmóti á Hólum

  • 28. nóvember 2025
  • Fréttir

Líkt og áður munu að sjálfsögðu allir gestir sem kaupa miða á Landsmót fá tjaldsvæði án endurgjalds. Þar mun hins vegar ekki vera aðgangur að rafmagni.

Þau sem vilja kaupa sérstök tjaldsvæði með aðgengi að rafmagni geta nú keypt þau inni á tix.is og á landsmot.is. Alls verða um 500 tjaldvæðareitir til sölu og hverjum reit fylgir ein rafmagnsinnstunga.

Á Tix.is er hægt að velja reiti en til gamans hefur reitunum verið raðað upp í götur sem bera nöfn frægra skagfirskra hrossa. Veljið „finna miða“ og síðan „skoða/breyta sætum“ til að velja reit.

Sérstakt forsölutilboð er á rafmagnstjaldsvæðum til áramóta, þau kosta nú 29.900 fyrir alla mótsvikuna en eftir áramót munu þau kosta kr. 34.900, sem er sama verð og á síðasta Landsmóti.

 

www.landsmot.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar