Folaldasýning Adams

  • 3. nóvember 2012
  • Fréttir
Folaldasýning Adams

„Hestamannafélagið Adam, heldur árlega folaldasýningu sína laugardaginn 10. nóv. Kl. 13 í Boganum að Þúfu í Kjós. Skrá þarf folöld í síðasta lagi á fimmtudaginn n.k. Skráningar skal senda á [email protected]  Skráningargjald er kr. 1500 á folald og greiðist á staðnum. Með skráningu þarf að fylgja IS-númer folalds, ef folald er ekki skráð þarf að senda nafn, uppruna, lit, nafn föður, móður og eiganda. Allir velkomnir að taka þátt. 

Strax að lokinni sýningu, verður haldið hrossauppboð, allt frá folöldum og upp úr. Bannað er að koma með rammslæg hross. Umráðamönnum er frjálst að vera með lágmarksverð eða ekki. Upplýsingar um uppboðsgripi þarf að senda á sama netfang ásamt viðeigandi upplýsingum. Þeim sem vilja taka þátt í uppboðinu er bent á að Adam tekur 10% þóknun af söluandvirði. Veitingabar Adams opnar á hádegi, en þar má fá sér eitthvað mjög gott í kroppinn, og tilvalið að kynda aðeins undir fyrir uppboðið. Jólabjórinn í ár er víst feiknafínn. Við hvetjum hestamenn að koma og taka þátt og eða fylgjst með skemmtilegri uppákomu. Það verður örugglega hægt að gera frábær kaup. Hestamenn; fjörið verður í Boganum næsta laugardag. Finnið ykkur bílstjóra í tíma!“
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link