Íslandsmót: Þórarinn og Bragi Íslandsmeistarar í flugskeiði

  • 16. júlí 2011
  • Fréttir
Íslandsmót: Þórarinn og Bragi Íslandsmeistarar í flugskeiði

Keppni í 100 metra flugskeiði fór fram í gærkvöldi á Íslandsmótinu á Brávöllum og fóru Þórarinn Eymundsson og Bragi frá Bjarnastöðum sprettinn fljótastir keppenda á 7,61 sekúndum. Ekki langt á eftir var Elvar Einarsson og Kóngur frá Lækjarmóti, en þeir fóru sprettinn á 7,65 sekúndum.  

Nú kl. 10.30 hefst dagskrá Íslandsmóts á seinni sprettum í 250 metra skeiði, en þar standa silfurverðlaunahafar flugskeiðsins, Elvar og Kóngur, efstir eftir fyrri tvo spretti gærkvöldsins.

Úrslit flugskeiðsins voru eftirfarandi:
1. Þórarinn Eymundsson og Bragi frá Bjarnastöðum 7,61.
2. Elvar Einarsson og Kóngur frá Lækjamóti 7,65
3. Metta Mannseth og Þúsöld frá Hólum með 7,72
4. Daníel Ingi Smárason og Hörður frá Reykjavík 7,78
5. Sigurður sigurðarson og Freyr frá Hafsteinsstöðum 7,92
6. Camilla Petra Sigurðardóttir og Vera frá Þóroddsstöðum 7,94
7. Bjarni Bjarnason og Hrund frá Þóroddsstöðum 8,21
8. Þórdís Gunnarsdóttir og Lilja frá Dalbæ 8,24
9. Jóhann Magnússon og Hugsýn frá Þóreyjarnúpi 8,47
10. Eyvindur Hrannar Gunnarsson og Ársól frá Bakkakoti 8,71

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link